Aðstaðan
Vörurnar eru handgerðar heima hjá mér í verkstæðinu í kjallaranum. Ég framleiði allt á Íslandi með metnaði og nákvæmni. :)
Stofnað
Ég hóf þetta verkefni fyrir nokkrum árum, eftir að hafa gengið með þá hugmynd í mörg ár að gera Ísland á fæti.
Jólaþorpið
ARToni tók þátt í Jólaþorpinu í Hafnarfirði árið 2019, sem var mjög skemmtileg og upplýsandi reynsla. Þar kynnti ég vörurnar mínar, hitti fullt af frábæru fólki og fékk góð viðbrögð. Ég stefni á að taka aftur þátt, því stemningin og upplifunin í Jólaþorpinu eru alltaf eitthvað sérstakt.