Stílhreint borðskilti með orðinu „Kort“, hannað til að setja á borð þar sem gestir skilja eftir kort og kveðjur. Skiltið er 13 × 7 cm að stærð og stendur sjálft, sem gerir það einfalt að staðsetja á gjafaborð, veisluborð eða í móttöku.
Passar einstaklega vel við fermingar, afmæli, brúðkaup og aðrar veislur þar sem smáatriðin skipta máli. Einföld og falleg lausn sem hjálpar til við að halda skipulagi – og lítur vel út á sama tíma.